lau. 19.5.2007
Hundapössunarpía
Jæja, þá er komið að því að setjast niður og koma einhverju nýju hérna inn. Mér fannst alveg tilvalið að leyfa þessari snilldar sögu að njóta sín í smá tíma. Með þeim betri sem ég hef komist yfir. Sýnir það í stuttu máli að stundum borgar sig að skoða hlutina þó ekki væri nema aðeins áður en gripið er til aðgerða.
Annars hafa hlutirnir gengið svona nokkuð sinn vinagang hérna á heimilinu, kosningarnar búnar, Eiríkur búinn að syngja, þó vonandi ekki sitt síðasta og sumarið búið og hautið komið. Mikið væri nú gott ef hætti að snjóa í fjöll hérna og færi að hlýna þó ekki nema lítið eitt.
En planið var að hafa alveg einstaklega rólega helgi hérna í sveitinni, sem og stefnir í nema við mæðginin gerðumst hundapössunarpíur yfir helgina. Ein lítil og loðin tík. Gaman af því en ég verð að segja það, að vakna kl 7 á laugardagsmorgni til að hleypa tíkinni út til að gera þarfir sínar, er ekki alveg efst á óskalistanum, en samt til vinnandi frekar en að verka þetta upp af gólfinu. En þetta er bara ein helgi og sonurinn hefur gaman af þessu.
Jæja, nú er von á gestum um helgina svo mér er víst ekki til setunnar boðið tími til kominn að húsmæðrast aðeins......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)