lau. 7.4.2007
Hreinskilni og væntumþykja
Jæja ég ætlað að vera búin að skrá framhald af síðustu sögu fyrir lifandi löngu en... þannig að nú kemur framhaldið.
Það kom mér á óvart í krossförinni miklu er ég fór að spurja til baka hvers vegna segir þú þetta við mig? Hvernig getur þú vitað hvað er mér fyrir bestu betur en ég? Hvað gefur okkur leyfi til að "taka aðra mannesku í gegn"? Jú oftar en ekki fekk ég svörin, " ja ég er bara svo hreinskilin manneskja, ég segi það sem mér finnst. Svo fylgdi oftar en ekki tal um væntumþykju þar á eftir.
Já ok nú var þetta farið að meika sens, það er nú bara þannig að okkur er ekki alltaf gefið að sjá sjálf okkur eins og aðrir sjá okkur, sem betur fer stundum. Stundum þurfum við leiðsögn annarra og stundum er ágætt að sjá sig með augum annarrs. En þar sem undirrituð er í smá uppreisn núna þá gat ég ekki annað en spurt áfram, en hvað með það að stundum má satt kyrrt liggja? Hvað með aðgát skal höfð í nærveru sálar? Hef ég semsagt leyfi til að vera segja hvað sem er við hvern sem er, ef ég er hreinskilin manneskja? Já hún helt það nú, en þegar ég sneri dæminu við og spurði hvað finnst þér um ef ég segi við þig og endurtók hennar orð til mín? Og viti menn það var bara ekki alveg eins sniðugt. Þannig að þetta átti bara ekki alveg jafn vel við þegar þessu var snúið við. En þannig er það kannski með okkur öll.
En nú er kannski komið nóg af þessum vangaveltum. En engu að síður athyglisvert. kannski virkar það bara vel að fara alveg aftur í kristinfræðina burt séð frá öllu öðru.
Elskaðu náungan eins og sjálfan þig.
Gleðilega hátið.
Athugasemdir
Please, láttu það eftir þér að elska sjálfa þig fyrst! Þá kemur hitt að sjálfu sér með náungann.
Vilborg Eggertsdóttir, 7.4.2007 kl. 02:20
Sæl og blessuð.
Er komin norður og nú heimta ég köku og kaffihittning, slúður og gamanmál.
Það er eðlilegt að vera í uppreisn reglulega, sérstaklega gagnvart fólki sem stendur manni nærri, ég þekki það vel af eigin raun. Þetta líður hjá eins og allir aðrir stormar.
Mig langar líka til að benda á að þegar fók kommentar nafnlaust segir það mikið meira um þann sem kommentar en þann sem skrifar. Þú Hafdís kemur þó fram undir nafni og hræðist ekki gagnrýni fyrir upplifun þína á umhverfi og tilfinningum, en sá sem lét þessi orð falla hér að neðan á greinilega e-ð bágt með sig gagnvart þér og er ekki nógu mikil manneskja til að tala við þig auglitis til auglitis.
Hlakka til að sjá þig og Hr Jóhann Harald ;-)
Ingunn Bé (IP-tala skráð) 20.4.2007 kl. 13:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.