Lifi enn á helginni.

Þá er vel liðið á vikuna, sumarfríð nálgast og loksins er komin rigning.  Já það var bara alveg kominn tími á smá rigningu, aðeins að bleyta í gróðrinum.

Ég get sko sagt ykkur það að helgin var svo góð að ég lifi enn á henni.  Á Þjóðhátíðardaginn skelltum við okkur í bæinn með Guðrúnu og Gabríel.  Auðvitað var aðeins stoppað við sviðið, keypt rándýr blaðra og við mæðginin letum okkur hafa það að bíða og bíða í röð til að drengurinn gæti nú rennt sér nokkrar ferðir í uppblásinni rennibraut hjá Skátunum.  Svo kíktum við í "túristaverslunina" Víkingur á göngugötunni.  Alger snilld þessi búð.  Þessi búð er trúlega eitt best geymda verslunarleyndarmál hér á Akureyri.  Ef þú hefur ekki farið þarna nýlega eða aldrei þá held ég að það sé kominn tími til að reima á sig betri skóna, tölta í bæinn og skella sér í Víking. (ódýr þessi maður LoL)

Laugardagurinn var alger snilld.  Eftir fjósið tókum við því bara rólega, fengum okkur morgunmat.  sonurinn horfði á barnaefni, mamman bloggaði og drakk nýmalað morgunkaffið í morgunkyrrðinni.  Svo drifum við okkur í sund í Hrafnargilslaugina, fengum okkur ís og skelltum okkur svo í Jólahúsið.  Það er nú betra að hafa vaðið fyrir neðan sig og byrja að huga að jólunum, það styttist óðum. FootinMouth     Jóhann fékk sér hangiket hjá jólasveininum og ég keypti mér karmellur og skoðaði úrvalið.  Svo tókum við rúnt um bæinn.  Þvílík umferð,  ég þurfti að bíða fimm sinnum á umferðaljósi hér í bæ,  og það gerist ekki á hverjum degi.  Drengurinn lagði sig í smá stund eftir allan hamaganginn og mamma dreif sig í kaffi í Jötunnfell, enda orðin vel kaffiþyrst eftir þetta allt saman.  Góð stund þar, takk fyrir mig. Joyful Þá var kominn tími til að láta sjá sig í grillveislunni sem við vorum boðin í.  ummmmm ég held sveimer þá að ég sé bara enn södd eftir þetta, enda át ég eins og hross í afmæli !!!!  FootinMouth


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæhæ og takk fyrir skemmtilegan dag 17. júní!! Við einmitt fórum í þessa túristabúð og komum út með bangsa sem var ódýr! Frábær búð í alla staði - með geggjuð föt, skartgripi, gjafavörur og marg margt fleira!!!

Við verðum svo að fara að plana útilegu :)

Guðrún K. og Gabríel (IP-tala skráð) 21.6.2007 kl. 10:08

2 identicon

Sæl frænka!

Ætlaði bara að hrósa þér fyrir skemmtilegt blogg.... gaman að heyra hvað þið eruð að bralla mæðginin!  Hef einmitt farið í "víking" og undraðist hvað búðin er ótrúlega stór þegar inn er komið!!  Átti góðan dag í dalnum í dag með nöfnu minni í S-Holti! Húsvitjuðum á einum bæ þar sem ég hafði ekki komið áður!!

            Kveðja, Dísa frænka

Dísa ömmusystir (IP-tala skráð) 23.6.2007 kl. 01:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband