mán. 9.7.2007
Sumarfrí, loksins
Þessa dagana hamast ég við að reyna að kom mér í sumarfrí. Gengur svona misvel en er þó að hafast. Nú á bara eftir að laga til, pakka, henda töskunum og krakkanum í bílinn og bruna af stað.
Reyndar er ég búin að afreka það að taka blessaðan bílinn minn alveg í nefið. Sápuþvo, bóna, extra glans, ryksuga, sápuþvo motturnar, þurrhreinsa sætin og þrífa innréttingar ég á bara eftir rúðurnar og fara með bílinn í smurningu þá er þetta orðið alveg stórglæsilegt. Það er þá hægt að byrja með sóma að skíta bílinn út aftur jæja svona er þetta bara.
En annars gengir þetta nú bara sinn vanagang hérna í sveitinni. Bændur að verða eða búnir að heyja, sauðir og hross farnin á fjall eða afrétt, kýrna í haganum, hundar og kettir að verða búnir að losa sig við vetrarfeldinn.
Gæti þetta verið eitthvað betra. Ég er komin í sumarfrí.........jey
Athugasemdir
Goda skemmtun og gledilegt sumarfri
Ásta Björk Solis, 10.7.2007 kl. 21:06
Takk fyrir það. Keyrði austur í dag í alveg himnesku veðri. Alveg yndi
Hafdís Jóhannsdóttir, 10.7.2007 kl. 21:40
Á ekki að koma við á Vestulandinu? Þú ert velkomin í kaffi, kleinur, heitan pott og sólbað. Kveðja
Pössunarpían (IP-tala skráð) 12.7.2007 kl. 23:26
Heyrðu jú, ég var að hugsa um að renna svo suður, þá kem ég bara við á leiðinni, fæ kaffi og með því. Læt þig bara vita áður en ég kem.
Hafdís Jóhannsdóttir, 13.7.2007 kl. 12:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.