fös. 27.7.2007
Gengið á Esjuna.
Í kvöld var gengið á Esjuna. Við náðum þó ekki alveg á toppinn en fórum ansi langt með það, áttum ekki langt í steininn sem er 5 áfangi af 6 en drengurinn var farinn að kvart mjög mikið þrátt fyrir að móðirinn væri búin að burðast með hann á bakinu af og til síðari hluta leiðarinnar. Ég ætlaði á toppinn en hafði það bara ekki í mér að pína barnið meira þannig að við gerðum bara samkomulag um að reyna aftur að ári enda yrði hann þá orðinn 5 ára og þá ætlum við á toppinn. En þetta var nú samt nokkuð gott bara hjá okkur.
Við erum reyndar búin að hafa alveg yndislegan dag. Byrjuðum daginn á Cafe Milanó, náðum í bílinn, fórum á Cafe París, Jóhann hljóp um Austurvöllin og Ingólfstorg þar sem hann reyndar var líka að bursla í vatninu sem flæðir þar um. Það fannst honum mjög gaman. Svo rúntuðum við aðeins um Reykjavík. Fórum í Perluna og renndum á Seltjarnarnesið. Kíktum síðan í kaffi á pallinn hjá ættingjum hérna. Svo eins og fyrr segir þá enduðum við daginn á Esju-göngu.
Sveimer þá ef ég er þá ekki bara búin að ná því að vera alvöru túrhestur í Borginni.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.