fim. 10.1.2008
Gleðilegt nýtt ár
Þá er komið nýtt ár einu sinni enn. Sveimer þá ef það er ekki bara satt að árin líði hraðar eftir því sem maður eldist. Þó hefur nú margt gerst á líðandi ári en samantektin kemur seinna. Ætlaði bara að setja inn smá færslu hérna með nýjárs kveðjum.
Ekki er nú hægt að segja annað en þetta hafi verið rólegheita jól svo róleg að ég er nú bara rétt að komast í gang aftur. Fór varla af bæ. Þó var að sjálfsögðu boðið í afmælispartý hér á nýjársdag þar sem Jóhann Haraldur varð nú fimm ára þann 3. jan sl. Auðvitað var heilmikið fjör og mikið gaman, drengurinn ánægður og enn ánægulegra hvað margir sáu sér fært að koma svona á fyrsta degi ársins.
Nú er lífið að komast í fyrri horfur, börnin byrjuð í skólanum, drengirnir í leikskólanum og ég í vinnu, bóndinn fékk auðvitað ekki mikið frí yfir hátíðirnar, mjólka skal kýrnar og fóðra ærnar hvort sem Jesúbarnið á afmæli eða ekki.
Ætla nú að láta þetta duga í bili, þarf aðeins að húsmæðrast svona fyrir helgina.
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla.
Athugasemdir
gleðilegt ár og takk fyrir síðast :)
gott að þú ert farin að blogga
Lóa (IP-tala skráð) 11.1.2008 kl. 14:40
gleðilegt ár mín kæra og til hamingju með prinsinn
Anna Guðbjörg Sigmarsdóttir, 12.1.2008 kl. 21:43
Dá kell bara vöknuð af blogdvalanum, og eg lögst í hann. Takk fyrir skemmtilegt afmæli. Verst að geta ekki verið í því næsta!!!
Unnur María Hjálmarsdóttir (IP-tala skráð) 15.1.2008 kl. 04:15
gledilegt ar somuleidis.
Ásta Björk Solis, 16.1.2008 kl. 21:41
já gleðilegt ár og takk fyrir síðast datt svona allt í einu í huga að fara á blogg síðuhring
Guðrún María (IP-tala skráð) 18.1.2008 kl. 18:52
Gleðilegt nýtt ár til ykkar og innilegar hamingjuóskir. Ingunn systir keeps me well informed af því sem gengur á þarna í sveitinni. Og einni gaf hún mér upp lykilorðið, vonandi var það í lagi. Vona að þið hafið sem allra best og vonandi sér maður ykkur fljótlega. Kannski bara í sauðburði??;)
Hafrún (IP-tala skráð) 21.1.2008 kl. 14:48
já gleðilegt er árið og veðrið líka.
Jú Hafrún í góðu með lykilorðið, ég var búin að byðja Ingunni um að koma því til þín. Við höfum það svakalega gott og sjáumst fljótlega, þó vonandi fyrir sauðburð.
Hafdís Jóhannsdóttir, 28.1.2008 kl. 00:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.