Gestabók
Skrifa í Gestabók
Gestir:
Hallo
bara að kasta kveðju Halli Bergur www.123.is/jmh
Halli bergur (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 6. nóv. 2008
Til hamingju
Sæl Hafdís þegar koma frétti hér hjá þér þá koma sko fréttir :) til hamingju með prinsessun ykkar.Kv Guðný Gunnl
Guðný Gunnlaugsd (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 21. ágú. 2008
Til hamingju
Ægilega er nú litla prinsessan sæt, ekki við öðru að búast þar sem þú ert á ferð:) og mikið verið lagt í hana hehehe. Ég reyndi að hringja í þig þegar ég var síðast á norðurlandinu en fékk ekkert svar. Reyni bara aftur síðar. Af mér er ýmislegt að frétta en þó ekki, ef þú hefur kíkt á bloggið mitt þá veistu kannski eitthvað um það sem á hefur gengið hér í sumar en annars þá segi ég þér allt af létta næst þegar við heyrumst. Til hamingju með skvísuna þína og ég hlakka til að sjá hana og þig og alla þína:) Knús frá mér og mínum Jóhanna
Jóhanna (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 18. ágú. 2008
Blessuð
Já loksins komin með lykilorðið eða kannaki réttara loksins kom ég mér að því að fá lykilorðið. Er alltaf á leiðinni að hringja en er þú veist, að spara símann;) Nú er önnin að verða búin, bara slatti af verkefnum og próf eftir. Reikna með að ég og fylgifiskar komum norður í maí og aldrei að vita nema við villumst fram Eyjafjarðarsveitina. Hafðu það gott og farðu vel með þig. knús Jóhanna
Jóhanna (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 10. apr. 2008
jólakveðja
Elsku Hafdís mín vona að jólahátíðin hafi farið vel með þig og þína, eigðu yndislegt ár með mörgum skemmtilegum ævintýrum. kveðja að austann Anna Bugga
Anna Guðbjörg Sigmarsdóttir, þri. 1. jan. 2008
Jólin
Halló Hafdís. Gleðileg jól til þín og þinna. Á alltaf kaffi sko kv Guðný
Guðný Gunnlaugs (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 23. des. 2007
Long time no see :)
Ég get nú ekki setið á mér að kvitta hérna á síðuna hjá þér, rakst á síðuna þína fyrir einhverja algjöra tilviljun ... hefði gaman af því að heyra í þér einhvern tímann, kv.María
María Sif Magnúsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 30. nóv. 2007
Heyrðu Góan
Á ekkert að fara að blogga eða hvað? Veistu kannski ekki um hvað þú átta skrifa??? Hummm, Hummm. Alla vega, kominn tími á eina færslu. En annars, ÁSTAR ÞAKKIR FYRIR SÍMTALIÐ um daginn, rosalega gaman að heyra í þér og skemmtileg tilviljun að þú skyldir akkúrat velja þennan dag. Segðu svo að við séum ekki í sambandi;o) hahaha. Knús og kossar til þín og nafna míns.
Jóhanna G Sigtryggsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 17. okt. 2007
Frúin á Mýrum
Gleymduð þið að flytja tölvuna með ykkur, eða hvað. Nú rukkum við eftir fréttum, hvernig líður ykkur í nýja húsinu, er Jóhann ekki í þrusu fjöru, og fleiri fréttir
Anna Júlía Skúladóttir (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 14. okt. 2007
Hæ hæ
Bara að kvitta fyrir komuna Guðný Gunnl
Guðný Gunnl (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 9. okt. 2007
Hæhó
Hæ hó vildi bara kvitta fyrir mig. kveðja Heiðrún hin fagra
Hei Jó (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 10. ágú. 2007
Sakna
Gott er að þið sjáið margar borgir Amma saknar Snáðans líka Ætlaði að skrifa á bloggið þitt en það gekk ekkert??? Sjáumst bráðum
unnur maria (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 18. júlí 2007
Sagan góð
Já sagan er góð... En er ekkert meira að segja????
unnur maría (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 18. maí 2007
Blessuð
Maður verður náttúrlega að skrifa í gestabókina eins og siður er þar sem þær eru til staðar:o) Farðu vel með þig gæskan. kveðja Jóhanna
Jóhanna (Óskráður, IP-tala skráð), lau. 12. maí 2007
14 daga frestur
Já 14 daga tímamörk að koma með athugasemdir. Eftir það er farið að slá í þetta. kv
Hafdís Jóhannsdóttir, lau. 17. feb. 2007
Gengur ekki....
Sæl frænka! þetta slór gengur auðvitað ekki lengur! Ekkert heyrst í þér síðan í lok jan.! :( Er farin að bíða í ofvæni eftir að heyra af þér og þínum!! Kveðja, Dísa móða
Þórdís Hjálmars (Óskráður), mið. 14. feb. 2007