Sumarfrí, loksins

Þessa dagana hamast ég við að reyna að kom mér í sumarfrí. W00t  Gengur svona misvel en er þó að hafast.  Nú á bara eftir að laga til, pakka, henda töskunum og krakkanum í bílinn og bruna af stað.  Wizard

Reyndar er ég búin að afreka það að taka blessaðan bílinn minn alveg í nefið.  Sápuþvo, bóna, extra glans, ryksuga, sápuþvo motturnar, þurrhreinsa sætin og þrífa innréttingar ég á bara eftir rúðurnar og fara með bílinn í smurningu þá er þetta orðið alveg stórglæsilegt.  Það er þá hægt að byrja með sóma að skíta bílinn út aftur Crying  jæja svona er þetta bara.

 En annars gengir þetta nú bara sinn vanagang hérna í sveitinni. Bændur að verða eða búnir að heyja, sauðir og hross farnin á fjall eða afrétt, kýrna í haganum, hundar og kettir að verða búnir að losa sig við vetrarfeldinn.

 Gæti þetta verið eitthvað betra.  Ég er komin í sumarfrí.........jey


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásta Björk Solis

Goda skemmtun og gledilegt sumarfri

Ásta Björk Solis, 10.7.2007 kl. 21:06

2 Smámynd: Hafdís Jóhannsdóttir

Takk fyrir það.  Keyrði austur í dag í alveg himnesku veðri.  Alveg yndi

Hafdís Jóhannsdóttir, 10.7.2007 kl. 21:40

3 identicon

Á ekki að koma við á Vestulandinu?  Þú ert velkomin í kaffi, kleinur, heitan pott og sólbað.  Kveðja

Pössunarpían (IP-tala skráð) 12.7.2007 kl. 23:26

4 Smámynd: Hafdís Jóhannsdóttir

Heyrðu jú, ég var að hugsa um að renna svo suður, þá kem ég bara við á leiðinni, fæ kaffi og með því.  Læt þig bara vita áður en ég kem. 

Hafdís Jóhannsdóttir, 13.7.2007 kl. 12:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband